Bíll

Nokkrar algengar spurningar varðandi bílinn.

Er óhætt að setja nýjan bíl á sjálfvirka þvottastöð?

Sjálfvirkar þvottastöðvar eru jafnt fyrir nýjar sem notaðar bifreiðar.

Hvað á að skipta oft um rúðuþurrkur?

Það fer eftir notkun. Í langflestum tilfellum er nægjanlegt að þrífa þurrkurnar með mildri sápulausn frekar en tjöruhreinsi eða ísvara. Ef endar þurrkunar eru byrjaðir að trosna eða egg blaðsins orðin gárótt er kominn tími til að skipta um.

Hvaða bón er best að nota á bifreiðalakk?

Bón hafa mismunandi eiginleika og eiginleikarnir fara eftir efnainnihaldi þeirra. Bón sem innihalda mikið af white spirit eru góð hreinsibón. Önnur innihalda ekkert/lítið white spirit eða önnur leysiefni og eru því síðri sem hreinsibón en oft betri bón, þ.e. innihalda meira vax og silikon og gefa þ.a.l. betri gljáa. Litabón eru tilvalin þegar litur er byrjaður að dofna eða til að fylla í grunnar og litlar rispur.

Hvað er best að nota til að hreinsa bílrúður?

Venjulegur rúðuúði (glerhreinsir) sem ætlaður er til heimilisnota er ágætur, en þó er vert að benda á glerhreinsi sem sérstaklega er ætlaður til þrifa á bílrúðum. Hann á að ná af tjöru, fuglaskít, dauðum flugum, jafnvel olíu, óhreinindi frá loftinntaki o.s.frv. Æskilegra er að glerhreinsirinn innihaldi ekki silíkon eða önnur efni sem geta valdið því að rúðan verði kámug.

Hvað eru hestöfl?

Hestafl er stöðluð mælieining sem notuð er til að mæla vélarafl. Miðað er við að eitt hestafl þurfi til að lyfta 75 kg upp um 1 metra á 1 sekúndu. Eitt hestafl jafngildir 0,736 kílówöttum.

Hvenær á að skipta á milli vetrar- og sumardekkja?

Almenna reglan er sú að búnaður bifreiða á að vera í samræmi við aðstæður á hverjum tíma, en þær geta verið breytilegar frá einu ári til annars og frá einum stað á landinu til þess næsta. Gatnamálastjórinn í Reykjavík hefur hins vegar sett ákveðnar reglur um notkun vetrar- og sumardekkja og er þar miðað við dagsetningarnar 15. nóvember og 15. apríl.

Hvernig er best að viðhalda lakki á bílum?

Litur lakksins dofnar með árunum, gljáinn minnkar og net örsmárra sprungna myndast sem veldur því að lakkið hrindir ekki eins vel frá sér vatni. Með því að þrífa og bóna reglulega má hægja á þessari þróun.

Hvaða loftþrýstingur á að vera í dekkjum?

Upplýsingar um réttan loftþrýsting má yfirleitt finna í hurðarfalsi eða handbók bifreiðar. Algengur loftþrýstingur í dekkjum fólksbifreiða er u.þ.b. 28 pund. Of mikill eða of lítill loftþrýstingur eykur slit á dekkjum og eldsneytiseyðslu. Rangur loftþrýsitingur hefur einnig áhrif á aksturseiginleika bifreiðarinnar sem getur þar með orðið hættuleg í akstri í hálku, bleytu eða við nauðhemlun. Athugið að mæla loftþrýstinginn þegar dekkin eru köld og takið tillit til hleðslu.

 

 

 

 

 



Leit

Leitarvél

Þú ert hér: Einstaklingar » Góð ráð fyrir bíleigendur » Bíll
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi