Inneignarkort Skeljungs er hentug lausn fyrir þá sem ferðast um Ísland. Shell hefur upp á að bjóða gæða eldsneyti, góða þjónustu og sanngjarnt verð um allt land. Þegar þú notar Inneignarkort Skeljungs sparar þú 2 kr./ltr. Samstarfið við sjálfsafgreiðslustöðvar Orkunnar gefur tækifæri á enn frekari sparnaði. Orkan býður einnig notendum Inneignarkortsins 2 kr./ltr. afslátt af sínu lága verði.
Fylgið leiðbeiningum um kortanotkun á eldsneytissjálfsölum á öllum Shell og Orkustöðvum um land allt. Hægt er að kaupa inneign til áfyllingar á kortin á Shell stöðvum.