Staðgreiðslukort og -lykill er ókeypis
Staðgreiðslukortið er í greiðslukortastærð á meðan lykillinn getur farið beint á lyklakippuna þína. Að öðru leyti er enginn munur á þessu tvennu. Þú einfaldlega velur hvor útfærlsan hentar þér betur.
Kortin og lyklarnir eru með innbyggðum örgjörva sem hægt er að beina að eldsneytisdælu og þannig opna fyrir úttekt. Staðgreiðslukortið og - lykillinn veitir 4 kr. afslátt frá dæluverði hjá Skeljungi og 3 kr. afslátt frá dæluverði hjá Orkunni. Dæluverð er það verð sem sést á dælum. Afsláttur er ekki veittur til viðbótar þegar sérkjör eru í gangi enda er það sérstaklega auglýst að aðrir afslættir gilda ekki.
Með Staðgreiðslukorti og -lykli Skeljungs verða eldsneytiskaupin því enn einfaldari og hraðvirkari. Kortinu eða lyklinum er einfaldlega borið upp að nema sem les allar upplýsingar og viðkomandi dæla opnast um leið. Ekki er þörf á PIN númeri og þú getur fylgst með úttektum á þjónustuvefnum. Upphæðin sem keypt er fyrir, fer beint út af debet- eða kreditkortinu þínu. Hægt er að sækja um fleiri en eitt Staðgreiðslukort eða -lykil á sama debet- eða kreditkort, t.d. ef margir fjölskyldumeðlimir nota þennan greiðslumáta.
Umsóknir eru hér og eru kort og lyklar send notanda ótengd í pósti.
Hér er hægt að tengja Staðgreiðslukort eða Staðgreiðslulykla sem borist hafa í pósti.
Staðgreiðslukortið og -lykilinn er hægt að nota á bensínstöðvum Skeljungs um land allt. Auk eldsneytis má greiða fyrir allar almennar vörur hjá Skeljungi með Staðgreiðslukortinu og - lyklinum og einnig er hægt að nota það á sjálfsafgreiðslustöðvum Orkunnar um allt land. Nánari upplýsingar um afgreiðslustaði Orkunnar eru á www.orkan.is.
Þegar þú tengir kortið eða lykilinn á heimasíðu Skeljungs færðu sjálfkrafa aðgang að þjónustuvef Skeljungs. Til þess að komast aftur inn á þjónustuvefinn ferð þú inn hér og skráir þig inn.
PIN númerið er val viðskiptavinar. Það á bæði við um hvort PIN númer sé í notkun og hvaða númer það er.
Hægt er að velja um mismunandi hámarksúttekt á sólarhring á Staðgreiðslukortinu og -lyklinum og getur sú upphæð orðið að hámarki 50.000 kr. á sólarhring. Eingöngu er skuldfært fyrir þá upphæð sem dælt er á bifreiðina hverju sinni.
Tapist kort eða lykill skal tilkynna það tafarlaust til Skeljungs, virka daga í síma 444 3100 og utan afgreiðslutíma í síma 444 3024.
Ýmis samstarfsfyrirtæki Skeljungs bjóða Staðgreiðslukorthöfum upp á sérstök afsláttarkjör gegn framvísun kortsins. Korthafa fá einnig 15% afslátt af smurþjónustu á smurstöðvum Skeljungs í Skógarhlíð og á Laugavegi. Þessir afslættir gilda líka fyrir þá sem velja lykil í stað korts.
Pitstop - Dugguvogi, Hjallahrauni og Rauðhellu.
15% afsláttur af dekkjaþjónustu, smurþjónustu og smáviðgerðum.
Stilling - Skeifunni 108 Reykjavík, Bæjarhrauni 6 Hafnarfirði, Draupnisgötu 1 Akureyri, Smiðjuvegi 68 Kópavogi, Bíldshöfða 12 112 Reykjavík og Eyravegi 29 Selfossi.
15% afsláttur af vara- og aukahlutum.
Nesdekk - Fiskislóð 15 og í Reykjanesbæ.
15% afsláttur af vörum og 20% afsláttur af vinnu. Nesdekk býður upp á dekkjaþjónustu, smurþjónustu og smáviðgerðir.
Smur 54 - Bæjarhrauni 6 Hafnarfirði.
20% af vinnu á smurstöð og smáviðgerðum.
Stórihjalli - Dalvegi 16a.
15% af smurþjónustu og smáviðgerðum.