Shell

Skeljungur rekur tvenns konar verslanir, Shell og Stöðina.  Munurinn á þessum tveimur tegundum verslana er fólginn í vöruvali og þjónustustigi.

Staðsetning Shell stöðva

Bensínstöðvar Shell eru með grundvallar vöruval, bæði í bílavörum sem og sælgæti, skyndibita og nýlenduvöru. Megináhersla Shell stöðvanna er eldsneytissala og þjónusta við bíleigendur og ökumenn. Hægt er að kaupa eldsneyti í sjálfsafgreiðslu og greiða þannig lægra verð fyrir eldsneytið eða þiggja þjónustu útistarfsmanna (starfsmanna á plani) sem reyna eftir fremsta megni að þjónusta viðskiptavini með allt sem þá vanhagar um. Sem dæmi um þjónustu útistarfsmanna má nefna:

  • áfyllingu eldsneytis
  • áfyllingu rúðuvökva
  • framrúðuþvott
  • aðstoð við skipti á rúðuþurrkublöðum
  • mælingu og áfyllingu á frostlegi
  • mælingu og áfyllingu smurolíu
  • skipti á ljósaperum (athugið að útistarfsmenn geta því miður ekki aðstoðað við þetta á öllum tegundum bifreiða)

Tekið skal fram að útistarfsmenn skipta ekki um rafgeyma og fylla ekki á sjálfskiptivökva.



Leit

Leitarvél

Þú ert hér: Einstaklingar » Shell
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi