Skeljungur býður framleiðslufyrirtækjum ýmis hráefni til sölu.
Leitast er við að bjóða viðskiptavinum heildarlausnir í hráefnisinnkaupum. Meðal þeirra sem við þjónum eru fyrirtæki í plastiðnaði, málningariðnaði, sápuframleiðslu, matvælaiðnaði, lyfjaiðnaði, prentiðnaði, fóðurframleiðslu og sjávarútvegi.
Starfsmenn Skeljungs búa yfir þekkingu og áralangri reynslu á sviði framleiðslu og vöruþróunar og miðla því til viðskiptavina í samstarfi við rannsóknarstofur erlendis og heima. Við tökum ábyrga afstöðu í umhverfis- og öryggismálum og veitum viðskiptavinum okkar faglega ráðgjöf á þessum sviðum.
Skeljungur heldur lager í Reykjavík þar sem við bjóðum viðskiptavinum okkar upp á að hafa öryggisbirgðir til að lágmarka skaða ef vandræði skapast í hráefnisinnkaupum. Við höfum á lager hráefni fyrir ýmsan iðnað og bjóðum upp á fljóta og örugga afhendingu hvert á land sem er.
Hér má finna lista yfir helstu hráefni sem Skeljungur býður upp á, flokkað eftir efnaflokkum. (Ath. listinn er ekki tæmandi og er enn í vinnslu.)