Úthafsþjónusta
Brautryðjendur í þjónustu fiskiskipaflotans.
Árið 1996 bauð Skeljungur fyrst íslenskra olíufélaga upp á þá nýbreytni að hafa sérstakt olíuskip í ferðum til að þjónusta sívaxandi flota íslenskra og erlendra úthafsveiðiskipa utan íslensku lögsögunnar.
Framan af var 4000 tonna olíuskip notað til þessarar þjónustu og var hægt að bjóða upp á smurolíur auk tveggja tegunda af eldsneyti. Þetta brautryðjendastarf mæltist vel fyrir meðal útvegsmanna. Árið 1997 var stofnað sérstakt félag um þessa þjónustu Úthafsolía ehf. og er það í eigu íslensku félaganna þriggja. Á vegum Úthafsolíu hefur verið haldið áfram að bjóða upp á þá þjónustu við flotann sem Skeljungur reið á vaðið með árið 1996.
Þú ert hér:
Fyrirtæki »
Skipaþjónusta »
Úthafsþjónusta